Í gær birti heilbrigðisráðherra nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Takmörkun á samkomum tekur gildi 4. maí 2020 kl. 00.00 og gildir til 1. júní 2020 kl. 23.59. Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar. Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Íþrótta- og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólastigi:

•
Engar fjöldatakmarkanir verða settar á iðkendur.

•
Öll íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, inni og úti, verði leyfð.

•
Skíðasvæði verði opin fyrir æfingar barna og unglinga.

•
Sundlaugar, búnings- og sundaðstaða verði opin fyrir sundæfingar barna og unglinga.

•
Keppni í íþróttum barna á leik- og grunnskólastigi verði heimil án áhorfenda.

•
Hvatt verði til sérstaks hreinlætis og handþvottar.

Íþróttastarf fullorðinna:

•
Mest verði sjö einstaklingar með þjálfara á útisvæði sem miðast við hálfan fótboltavöll.

•
Mest verði fjórir einstaklingar með þjálfara á innisvæði sem miðast við handboltavöll.

•
Notkun búningsaðstöðu innanhúss verði óheimil.

•
Hvatt verði til að tveggja metra nándarreglan verði virt.

•
Keppni í íþróttum fullorðinna verði óheimil nema ef hægt sé að uppfylla skilyrði um tveggja metra nándarreglu og að keppni sé án áhorfenda. 

•
Sundæfingar fyrir fullorðna verði að hámarki fyrir sjö einstaklinga. Notkun búnings- og sturtuaðstöðu verði leyfð.

•
Áfram verði hvatt til sérstaks hreinlætis, handþvottar og notkunar handspritts.

Æfingar yngri flokka í handbolta geta því hafist eftir leiðbeiningunum hér að ofan 4. maí nk.